Til hamingju Ísland er yfirskriftin í kvöld
Hérna er það sem við erum að tala um
(13987).
Yfirvegunin í leik liðsins allt til enda á sér enga fyrirmynd. Liðið leiddi leikinn allan tímann og þó munurinn hafi verið 1 stig í lok 3 leikhluta þá voru strákarnir aldrei á því að gefa sigurinn eftir og staðreyndin 12 stiga sigur. Hérna hefur heimavöllurinn skilað sínu, en tævan átti aldrei möguleika á að komast inní leikinn í lokin þrátt fyrir að hafa reynt vel flest trixin í bókinni. Hack a shaq heyrir sögunni til en nú nefnist þetta hack a Björn þar sem tævan reyndu hvað þeir gátu að senda hann á línuna í kvöld.
Það er margt jákvætt sem hægt er að taka úr leik liðsins í kvöld en þó ber helst að geta Óðins en hans frammistaða var lýginni líkust. 29 stig og 24 fráköst á 43 mínotum. Tinni hjálpaðu honum vel í frákastabaráttunni og vann liðið frákastabaráttuna með 20 fráköstum. Björn og Jörundur voru þeir einu sem komust í tveggja stafa töluna í stigaskorun ásamt Óðni. Óðinn var æðstur manna á vellinum eins og nafni hans Óðinn var æðstur guða í Snorra-eddu.
Samt sem áður þá var það liðsheildin sem skilaði þessum sigri en liðið tapaði aðeins 12 boltum sem er mjög ánægjulegt og vonandi að liðið haldi tölunni svona lægri í framtíðinni þá eru þeim allir vegir færir.
Að lokum þá vill ritstjórnin koma því á framfærir að leikurinn í kvöld minnti á þennan atburð
http://www.youtube.com/watch?v=vtGi8XLbWyc þó bið ég þá sem ekki höndla fimmaurabrandaramenninguna hérna um að láta þennan link eiga sig. En þarna sést Óðinn í aðalhlutverki og honum til aðstoðar sitt hvorum megin eru þeir Björn og Arngrímur sem áttu flestar stoðsendingar í leiknum í kvöld. Einnig vil ég benda mönnum á að það sést glitta í þjálfara liðsins í lok myndbansins.